
Held að þarna hafi tveir beinhákarlar fest sig undir bryggjunni og annar var mjög stór. Mikil læti voru í þeim og bryggjan hristist þegar þessar stóru skepnur reyndu að losa sig.

Held að þarna hafi tveir beinhákarlar fest sig undir bryggjunni og annar var mjög stór. Mikil læti voru í þeim og bryggjan hristist þegar þessar stóru skepnur reyndu að losa sig.

Við bjuggum í Hvanneyrarbraut 35 fyrir framan húsið er grafan sem pabbi var að vinna á.

Kata hans Palla Ólu, Þórhallur Dan og Mamma. Myndin er tekin á Hvanneyrarbraut 35 í 1965 þar sem við bjuggum.
Steinar Bald leigði herbergi hjá okkur og voru þeir Þórhallur miklir vinir.

Konan lengst til hægri er amma Guðbjörg og mig minnir að sú í miðjunni hafi heitið Ólína. Mér finnst Bubba hans Bjarna Box líkjast ömmu sinni.

Hérna áður voru þetta vinsæl farartæki, eldra systkini þá oft með yngra í sætinu. Þessi mynd er tekin á Hverfisgötunni og
húsið sem er næst er húsið þeirra Ernu Rósmundar og Jóa Valda vörubílstjóra.


Greinilega mikill snjór á Sigló


Þessi kona var lummumeistari Brekkunar, hún kallaði oft á okkur brekkuguttana þegar hún bakaði lummur og var það vel þegið, ísköld mjólk og nýbakaðar lummur.