
Þessi bræla á að vera búin á morgun.

Þessi bræla á að vera búin á morgun.

Mánaberg eins og brimbretti á öldunum.

Smíðaði græju undir vélina til að hafa hana stöðuga. Þessi er tekin með aðdrætti í miklum veltingi.

Erfitt er að ná góðum myndum í veltingi og lélegu skyggni með aðdrátt á vélinni. Læt þessa samt fljóta með.

Þeir villast líka múkkarnir í Noregi eða er hann kannski Íslenskur ?

Fiskurinn hérna við Noreg er mjög vænn. Þessir fara í handflökun þar sem vélarnar ráða ekki við þá.

Sjaldgæft að sjá þetta sjónarhorn af Mánabergi. Video tekið í landi.
slóð: http://fiskeribladetfiskaren.no/album/?album=10001493
http://fiskeribladetfiskaren.no/?side=101&lesmer=35549
Video og ljósmyndir : Bjørn Eide

Sverrir bakar meðan hann eldar og ber á borð, ótrúlegur kokkur. Sama hvernig viðrar þá er alltaf jafngóður matur hjá honum.

Frímann mætir í matinn, enda fiskibollur að hætti Sverris.

Snillingurinn Sverrir matreiðir ljúfengan mat hvernig sem viðrar.