
Villi aðstoðarkokkur.
Image
Reply





Hrefnan er svört á baki og hvít á kvið. Hún er 7-11 m á lengd og 5-10 tonn að þyngd. Kýrin er stærri en tarfurinn.
Aðalfæða hennar hér á norðurhveli er sandsíli og áta þó hún taki líka síld, loðnu og eitthvað af þorski. Hún er farhvalur og kemur hingað á vorin, en á veturna heldur hún sig á suðlægari slóðum.


Skemmtilegt að fá heimsókn frá þessum dýrum, virðast vera á eftir fiski sem sleppur í gegnum möskva trollsins þegar híft er.


Dóri er að hverfa til annara starfa eftir þennan túr. Ég vill þakka honum gott samstarf á liðnum árum og megi honum farnast vel í nýju starfi.