6. janúar. Fallegt veður og fljúgandi hálka á Sigló í dag.
Image
Reply
Lögðum af stað frá Siglufirði kl 8 til þess að ná í nýja bátinn hans Daða sem er á Hólmavík.
Ekki tókst betur til en að bíllin fór að hegða sér undarlega, fyrst slökkti hann öll ljós og
átti Daði í mesta basli við að halda honum á veginum þar sem útsýnið var ekkert í myrkrinu.
Síðan duttu allir mælar út og þar með sjálfskiftingin. Í staðarskála var veðurspáin fyrir Laugar-
dag skoðuð og þar með ákveðið að hætta við ferðina og skrölta heim aftur á bílnum hálfbiluðum.