Smíðin á Hafdísi SI 100 árið 1961.

1

Stórmerkilegar myndir þegar Hafdísin SI 100 nærri 10 tonna bátur var smíðaður í húsi sem var það þröngt að rjúfa þurfti þekjuna til þess að klára stýrishúsið að ofan og koma bátnum út. Húsið var efsta hús bæjarins rétt undir Hvanneyrarskálinni (c.a. þar sem gamla rafstöðin er) Njörður Jóhannsson skipasmiður og völundur lét mig hafa þessar myndir til skönnunar og er ég þakklátur fyrir það. Hann var þáttakandi í þessu ævintýri ásamt afa sínum og Sæma Jóns.