Monthly Archives: December 2015
7. desember, fuglinn veit að veðrið er að versna.
Image
5.desember, Gnúpur GK 11 upphaflega Guðbjörg IS .
Image
5.desember, myndir af Gnúpnum í ólgusjó.
Image
Soffí VE 265
Soffí VE 265 að koma ný frá Danmörku árið 1924 Soffí og Sísí voru systurskip og höfðu samflot yfir hafið frá Fredriksundi þar sem þeir voru smíðaðir en báðir bátarnir voru í eigu Gísla J Johnsens útvegsbónda. Þetta eru ótrúega skýrar myndir ef litið er til þess að þær eru orðnar 88 ára gamlar
Amma átti systur, Soffíu Gísladóttir Johnsen þaðan kemur nafnið Soffí, ekki þekkti ég hana en sonur hennar Gísli G. Ísleifsson var vinur minn, hann er nú látinn.
Heimildir Bátar og Skip og Heimaslóð.
Amma og afi í tilhugalífinu.
Sísí VE 265. Rakst á þennan bát á síðunni Bátar og Skip
Hér er Sísí VE 265 að koma ný frá Friðrikssund í Danmörku en hún var smíðuð þar árið 1924. Sísí var kantsettur tvístefnungur og mæld 13 tonn búin 36 hesta Dan vél. Eigandi var Gísla J. Johnsen langafi minn í Vestmannaeyjum.
Ég tel víst að báturinn hafi verið skírður eftir
ömmu sem kölluð var Sísi og hefur verið rétt um tvítugt þegar
báturinn kom nýr.
Mynd og upplýsingarum bátinn: http://batarogskip.123.is/
Aðrar upplýsingar og myndir af Heimaslóð.is









