
Kambásinn

Kambásinn

Kiddi og Danni skipta um kambáslegur

Gengið frá seinni helming heddanna fyrir morgundaginn.

Dóri á talíunni.

Heddin á leið niður í vél, fara á vélina á morgun. Meistarinn og Aðalmaðurinn sjá um verkið.

Hvað skildi Ási vera að hugsa.

Búið að herða róna og splitta.

Stimpill á leið niður.

Stimplarnir fóru allir á sinn stað í dag.

Bjössi búinn með heddin og er á leiðinni suður og tekur rafalann á kerruna.