11. október. Haftyrðill.

IMG_3010

Haftyrðill (fræðiheiti – Alle alle) er smávaxinn svartfugl af svartfuglaætt og

eini fuglinn af ættkvíslinni Alle.

Haftyrðillinn hefst við í björgum á daginn, flýgur á kvöldin til hafs í leit

að æti, en snýr svo aftur í björgin á morgnana. Helsta æti haftyrðils er

krabbadýr, en einnig allavega hryggleysingjar, eins og til dæmis blaðfætlur.

Haftyrðillinn er á milli 19-21 sentimetrar að lengd.

Haftyrðillinn verpir sífellt norðar og verpti síðast á Íslandi árið 1995. Að

líkindum er það vegna hlýnunar jarðar, en hann sækir í frekar köld svæði til

varps og verpti síðast á Grímsey við Ísland.