
Það var kalt á Sigló á þessum árum

Það var kalt á Sigló á þessum árum

Í þessa daga fluttu skip mest af þeim vörum sem sjávarplássin
þurftu og tóku fisk og mjöl til útflutnings.

Þarna má sjá ýmsar gamlar byggingar sem eru horfnar.


Held að þarna hafi tveir beinhákarlar fest sig undir bryggjunni og annar var mjög stór. Mikil læti voru í þeim og bryggjan hristist þegar þessar stóru skepnur reyndu að losa sig.

Við bjuggum í Hvanneyrarbraut 35 fyrir framan húsið er grafan sem pabbi var að vinna á.

Kata hans Palla Ólu, Þórhallur Dan og Mamma. Myndin er tekin á Hvanneyrarbraut 35 í 1965 þar sem við bjuggum.
Steinar Bald leigði herbergi hjá okkur og voru þeir Þórhallur miklir vinir.

Konan lengst til hægri er amma Guðbjörg og mig minnir að sú í miðjunni hafi heitið Ólína. Mér finnst Bubba hans Bjarna Box líkjast ömmu sinni.

Hérna áður voru þetta vinsæl farartæki, eldra systkini þá oft með yngra í sætinu. Þessi mynd er tekin á Hverfisgötunni og
húsið sem er næst er húsið þeirra Ernu Rósmundar og Jóa Valda vörubílstjóra.