
Þekki Jón Þorsteins og Jómba Hilmars

Þekki Jón Þorsteins og Jómba Hilmars

Gæti verið ferð í Grímsey eða Þórðarhöfða. Á myndinni þekki ég Meyja bróðir pabba og Jómba Hilmars

Svona var ferðast hér áður, gæti verið Grímseyjarferð að vori.

Þarna hefur Systa fengið að vera með á myndinni.

Heddi var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Siglfirðinga. Það var þegar Siglfirðingar áttu kaupfélag, Skeiðfossvirkjun og mjólkin kom frá Hólsbúinu. Sjálfir sér nógir um flesta hluti.

Vinir pabba og mömmu í stofunni á Lindargötu 18. Á borðinu má sjá lúxusinn sem boðið var uppá, Gin í Sevenup, Mackintoch í dós og Chesterfield sígarettur. Heddi hét Skarphéðinn Guðmundsson og var einn af fremstu skíðamönnum Íslands. sjá: http://leor.123.is/blog/2011/02/09/503577/

Hóf sjómannsferilinn á Haferninum árið 1969. Þetta var 9 mánaða
túr og var útgerð hans hætt árið 1970.

Gamalt stýrishús í garðinum hjá Jónasi Rakara.

Fallegt hús sem hefði átt að gera upp.

Tekin á Lindargötunni.