Björn Austræni SI 8
Category Archives: Gamlir Bátar
24. mai. Gamlir bátar, ljósmynd af ljósmynd.
Hérna má sjá Ólafsfjörð árið 1910 og er þetta mynd af frönsku póstkorti.
Upplýsingar: http://www.aba.is/ – ólafsfjarðarhorn og ættingjar Páls.
Kompásinn sem kom þeim á Skúla Fógeta heim frá Kolbeinsey 1942.
Image
Elvar í fanginu á afa sínum Páli J Þorsteinssyni.
Image
Skúli fógeti EA-461 var smíðaður fyrir Þorstein Þorsteinsson og William Þorsteinsson Ólafsfirði.
Samkvæmt vefsíðu Árna Björns Árnasonar – http://www.aba.is/ Áttu þeir bátinn í 15 ár eða frá 1929 til 1944. Þessi frétt var í blöðunum 1929: 3 vjelbátar hafa verið raflýstir hjer við fjörðinn í vor. Er það »Æskan« eign Malmquist Einarssonar og tveir nýir bátar ur Ólafsfirði, Kári Sölmundarson og Skúli fógeti. Eru þetta fyrstu bátarnir, sem þessi sjálfsagða og hentuga lýsing er sett í hjer norðanlands. Milli 10 og 20 ljós eru í hverjum bát, ofan þilfars og undir. Er þetta stórt skref til betri og fullkomnari útbúnaðar. Elektro Co hefur sett raflýsinguna í þessa báta.
Páll J Þorsteinsson, skipstjóri á m.b.Skúla Fógeta EA frá Ólafsfirði.
Það átti eftir að koma í ljós að afkomandi hans þ.e.a.s. dóttursonur er hérna um borð og vinnur með mér í vélarúminu. Þetta er hann Elvar Smári Kristinsson vélstjóri. Hann sagði mér að á ættarmóti hjá afkomendum Páls hefði kompásinn úr Skúla Fógeta verið til sýnis, örugglega tækið sem bjargaði þeim í land.
M.b. Skúli fógeti frá Ólafsfirði. Róður frammí Kolbeinsey.
Hornið – Fréttir og fréttatengt efni um Ólafsfjörð segir frá þessum róðri á 12 lesta bát frammí Kolbeinsey árið 1942.
sjá hér: http://olafsfjardarhorn.blogspot.is/2014/04/fostudagur-1-mai-1942_26.html?view=timeslide
Soffí VE 265
Soffí VE 265 að koma ný frá Danmörku árið 1924 Soffí og Sísí voru systurskip og höfðu samflot yfir hafið frá Fredriksundi þar sem þeir voru smíðaðir en báðir bátarnir voru í eigu Gísla J Johnsens útvegsbónda. Þetta eru ótrúega skýrar myndir ef litið er til þess að þær eru orðnar 88 ára gamlar
Amma átti systur, Soffíu Gísladóttir Johnsen þaðan kemur nafnið Soffí, ekki þekkti ég hana en sonur hennar Gísli G. Ísleifsson var vinur minn, hann er nú látinn.
Heimildir Bátar og Skip og Heimaslóð.









