28. desember. Zion eitt af gömlu húsum bæjarins

IMG_1896

Stofnandi Hvítasunnukirkjunnar Zíon var Sigurlaug Björnsdóttir á Siglufirði. Hún frelsaðist 1922 í Stavenger í Noregi, kom síðan heim og hóf starf hér á Siglufirði.

Sigurlaug keypti húsið Grundargötu 7a árið 1946, nefndi það Zíon og hóf barnastarf af fullum krafti ásamt því að halda samkomur fyrir fullorðna. Alla tíð síðan hefur þetta hús verið notað í þjónustu Drottins.

Einnig tóku þátt í starfinu frá fyrstu árum þær Þórunn Gunnarsdóttir og Elín Jónasdóttir. Sigurlaug Kristinsdóttir og Ásgrímur Stefánsson störfuðu í Zíon frá fyrrihluta árs 1969 til haustsins 1986 eða í samfleytt 17 1/2 ár. Þau héldu úti blómlegu barnastarfi í hverri viku og voru rómaðir saumafundirnir hennar Sigurlaugar. Einnig voru þau með samkomur fyrir fullorðna vikulega.
(Upplýsingar af nat.is)

26. desember. Siglufjarðarkirkja.

IMG_1875

Saga kirkjunnar.

Siglufjarðarkirkja er í Siglufjarðarprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Kirkja hefur verið á Siglufirði síðan 1614, en var áður á Siglunesi. Steinsteypukirkjan, sem nú stendur, var byggð 1932. Allmikið húsrými er á kirkjulofti og þar var gagnfræðaskóli Siglufjarðar starfræktur um alllangan tíma. Safnaðarheimili var vígt á loftinu árið 1982. Arne Finsen, arkitekt, teiknaði kirkjuna en Einar Jóhannsson og Jón Guðmundsson voru byggingameistarar.

Kirkjan er um 35 metra löng og 12 metra breið. Hún tekur um 400 manns í sæti. Turninn er um 30 metra hár og tvær miklar klukkur þar (sú meiri um 900 kíló að þyngd, að sögn) eru gjöf frá Sparisjóði Siglufjarðar, 1932.

Sverre Tynes var yfirsmiður. Steint gler var sett í glugga kirkjunnar 1974. María Katzgrau teiknaði þá en Oidtmannbræður í Þýskalandi gerðu þá. Meðal góðra gripa kirkjunnar má nefna altaristöfluna frá 1726 (síðasta kvöldmáltíðin) og aðra frá 1903, sem sýnir Krist í grasagarðinum eftir Anker Lund. Þriðja altaristaflan með mynd af Kristi, þar sem hann birtist sjómönnum í hafsnauð, er eftir Gunnlaug Blöndal. Skírnarsárinn er eftir Ríkharð Jónsson. (Heimild af kirkjukort.net)