
Þó að ekkert veiðist, eru forréttindi að eyða tíma með syni
sínum í útilegum og ævintýrum.

Þó að ekkert veiðist, eru forréttindi að eyða tíma með syni
sínum í útilegum og ævintýrum.


Prófuðum í norður hluta vatnsins, ekkert nema seiði.

Stoppuðum stutt þar sem við vorum ekki með flugnanet,
urðum ekki varir.

Þarna var allavega mikið af mýflugum mjög árásagjarnar.

Við Ívar höfðum frétt af veiði í þessari tjörn og fórum til
að prófa.




John er mikill veiðimaður og hefur veitt í áratugi