
Blog Archives
Beinhákarl
Image
Bryggjurnar og hákarlar
Image

Held að þarna hafi tveir beinhákarlar fest sig undir bryggjunni og annar var mjög stór. Mikil læti voru í þeim og bryggjan hristist þegar þessar stóru skepnur reyndu að losa sig.
Hvanneyrarbraut 35, nýja og gamla sjúkrahúsið
Image

Við bjuggum í Hvanneyrarbraut 35 fyrir framan húsið er grafan sem pabbi var að vinna á.
Þórhallur Dan í góðum gír
Image

Kata hans Palla Ólu, Þórhallur Dan og Mamma. Myndin er tekin á Hvanneyrarbraut 35 í 1965 þar sem við bjuggum.
Steinar Bald leigði herbergi hjá okkur og voru þeir Þórhallur miklir vinir.
Ein gömul
Image

Konan lengst til hægri er amma Guðbjörg og mig minnir að sú í miðjunni hafi heitið Ólína. Mér finnst Bubba hans Bjarna Box líkjast ömmu sinni.
Sparksleði
Image

Hérna áður voru þetta vinsæl farartæki, eldra systkini þá oft með yngra í sætinu. Þessi mynd er tekin á Hverfisgötunni og
húsið sem er næst er húsið þeirra Ernu Rósmundar og Jóa Valda vörubílstjóra.
Ein frá Aðalgötunni
Image

1. mai ganga
Image

Greinilega mikill snjór á Sigló
Hafís á firðinum
Image

