
Ég man nokkur símanúmer áður en þessi tækni tók við, þetta voru tveggja stafa númer. 92 heima og 85 hjá Öbbu frænku.
Pabbi til hægri á myndinni.

Ég man nokkur símanúmer áður en þessi tækni tók við, þetta voru tveggja stafa númer. 92 heima og 85 hjá Öbbu frænku.
Pabbi til hægri á myndinni.

Þessi búnaður leysti Möddu Halls og aðrar símastúlkur af hólmi.

Þessar myndir eru teknar þegar tæknimenn símans settu upp búnað í norðurhluta pósthússins

Þekki ekki þennann enda myndin frekar óskýr. Pabbi vann í mörg ár hjá Símanum, þannig að öllum líkindum hefur hann tekið þessa mynd. Maðurinn er farinn úr stauraskónum til að sitja fyrir á myndinni.

Ekki veit ég hvar þessi er tekin og maðurinn á myndinni gæti verið pabbi.

Þekki Jón Þorsteins og Jómba Hilmars

Gæti verið ferð í Grímsey eða Þórðarhöfða. Á myndinni þekki ég Meyja bróðir pabba og Jómba Hilmars

Svona var ferðast hér áður, gæti verið Grímseyjarferð að vori.

Þarna hefur Systa fengið að vera með á myndinni.

Heddi var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Siglfirðinga. Það var þegar Siglfirðingar áttu kaupfélag, Skeiðfossvirkjun og mjólkin kom frá Hólsbúinu. Sjálfir sér nógir um flesta hluti.